Kærur Mílu og Ljósleiðarans vegna bráðabirgðaákvörðunar FST nr. 9/2023. Kærunum var vísað frá.
- gr. Framkvæmd markaðsgreiningar
Í tengslum við framkvæmd markaðsgreiningar á heimtauga- og bitastraumsmörkuðum tók Fjarskiptastofa ákvörðun til bráðabirgða, sbr. ákvörðun nr. 9/2023, um að leggja á Mílu kvaðir þar til að ákvörðun um endanlega markaðsgreiningu lægi fyrir eða í síðasta lagi til 1. mars 2024. Míla kærði þá ákvörðun og taldi skorta skilyrði fyrir töku bráðabirgðarákvörðunar og hún væri auk þess háð ýmsum annmörkum hvað varðar málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga.
Í úrskurði í kærumáli nr. 1/2023 var kæru Mílu vísað frá á grundvelli þess að bráðabirgðaákvarðanir væru almennt ekki kæranlegar, þar sem að með slíkum ákvörðunum væri ekki verið að binda endi á stjórnsýslumál. Þessu til viðbótar skoðaði nefndin lagaskilyrði fyrir töku bráðabirgðaákvörðunar og féllst á það með Fjarskiptastofu að þau væru uppfyllt. Einnig fjallaði nefndin um að það gæti aldrei orðið kvaðalaust tímabil hjá útnefndu fjarskiptafyrirtæki með umtalsverðan markaðsstyrk án undangenginnar markaðsgreiningar þar að lútandi.