Hoppa yfir valmynd
Ákvarðanir
Númer
4/2007
Heiti
um útnefningu fyrirtækis með umtalsverðan markaðsstyrk og álagningu kvaða á markaði fyrir aðgang og upphaf símtala í almennum farsímanetum (Endanlegar ákvarðanir um markaðsgreiningu / Markaður 15)
Dagsetning
05.02.2007
Málsaðilar
Málaflokkur
Markaðsgreiningar - samkeppnismál
Lagagreinar
  1. gr. Framkvæmd markaðsgreiningar.
  1. gr. Umtalsverður markaðsstyrkur.
  1. gr. Kvaðir á fjarskiptafyrirtæki.
  1. gr. Aðgangur að netum og þjónustu.
  1. gr. Gagnsæi.
  1. gr. Jafnræði.
  1. gr. Bókhaldslegur aðskilnaður.
  1. gr. Eftirlit með gjaldskrá.
Reifun

Á grundvelli niðurstaðna úr markaðsgreiningu útnefndi Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) Símann með umtalsverðan markaðsstyrk á báðum mörkuðum, þ.e. GSM og NMT. Það var jafnframt niðurstaða PFS að Vodafone væri ekki lengur með umtalsverðan markaðsstyrk á farsímamarkaði skv. eldri fjarskiptalögum nr. 107/1999. PFS ákvað að leggja á Símann skyldu til að verða við eðlilegum og sanngjörnum beiðnum um aðgang að GSM farsímaneti og þjónustu á heildsölustigi, m.a. um: innanlands reiki, samnýtingu eða samhýsingu, aðgang til endursölu og sýndarnetsaðgang. Jafnframt voru lagðar á GSM farsímanet Símans kvaðir um jafnræði, gagnsæi, bókhaldslegan aðskilnað og eftirlit með gjaldskrá. Símanum var gert skylt að birta viðmiðunartilboð fyrir aðgang að GSM farsímaneti sínu og þjónustu þar sem fram koma aðgangsverð fyrir endursölu, sýndarnet og innanlands reiki. PFS ákvað að leggja á Símann skyldu til að verða við eðlilegum og sanngjörnum beiðnum um aðgang til endursölu að NMT farsímaneti og þjónustu. Þá voru lagðar á NMT farsímanet Símans kvaðir um jafnræði, gagnsæi og eftirlit með gjaldskrá.
Tengt efni
Viðauki A - Uppfærð greining á M 15
Viðauki B - Verðsamanburður
Viðauki C - Svör við athugasemdum vegna M 15
Viðauki D - Svör við athugasemdum við lokadrög
Viðauki E - Athugasemdir ESA:
Fyrri athugasemdir ESA
Seinni athugasemdir ESA