Fréttasafn
28. janúar 2016
Nýjar verklagsreglur um skráningu og miðlun upplýsinga um áskrifendur númera í fastlínu- og farsímakerfum.
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun hefur unnið að endurskoðun á verklagsreglunum með hliðsjón af því hvernig slík skráning og miðlun hefur gengið fyrir sig frá því nýtt fyrirkomulag um miðlun símaskrárupplýsinga tók gildi þann 1. júlí 2014.
22. janúar 2016
Framlengdur skilafrestur í samráði um endurskoðun gjaldskrár Mílu fyrir aðgang að koparheimtaugum
Nánar
Ákveðið hefur verið að framlengja frest til að skila inn umsögnum og athugasemdum og skulu þær berast stofnuninni eigi síðar en 29. janúar 2016.
20. janúar 2016
Nýr viðauki um útbreiðslu- og uppbyggingakröfur tíðniheimildar 365 miðla ehf.
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) birtir í dag viðauka II við tíðniheimild A í samræmi við ákvörðun stofnunarinnar nr. 37/2015 frá 30. desember sl., þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að forsendur væru fyrir því að gerðar yrðu breytingar á 2. gr. tíðniheimildar A á 800 MHz tíðnisviðinu sem 365 miðlar ehf. hlutu í uppboði stofnunarinnar á tíðnisviðinu í ársbyrjun 2013.
14. janúar 2016
Yfirlýsing Póst- og fjarskiptastofnunar vegna fréttaflutnings af gjaldskrárhækkunum Íslandspósts
Nánar
Vegna nýlegs fréttaflutnings af þeim gjaldskrárhækkunum sem PFS hefur gefið Íslandspósti heimild fyrir á undanförnum misserum vill stofnunin árétta nokkur atriði sem misskilningur virðist ríkja um.
13. janúar 2016
Norðurlönd sameinast um leiðbeinandi reglur til að efla upplýsingaöryggi í fjarskiptanetum
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun hefur, ásamt öðrum norrænum fjarskiptaeftirlitsaðilum, gefið út leiðbeinandi reglur, eða tilmæli, til að efla upplýsingaöryggi í fjarskiptanetum. Tilmælin varða merkjakerfi nr. 7 (Signalling System No. 7 eða SS7) sem fjarskiptafyrirtækin nota sín á milli til að setja upp og stýra uppsetningu símtala og gagnastreymi notenda.
11. janúar 2016
PFS kallar eftir samráði um endurskoðun á verklagsreglum um skráningu og miðlun upplýsinga um áskrifendur sem úthlutað hefur verið númerum í fastlínu- og farsímakerfum
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur unnið að endurskoðun á verklagsreglum um skráningu og miðlun upplýsinga um áskrifendur sem úthlutað hefur verið númerum í fastlínu- og farsímakerfum. Hefur sú endurskoðun verið gerð með hliðsjón af því hvernig slík skráning og miðlun hefur gengið fyrir sig frá því nýtt fyrirkomulag um miðlun upplýsinga símaskrár tók gildi þann 1. júlí 2014.
8. janúar 2016
Raunlægt öryggi hýsingaraðstöðu Mílu ehf. er í flestum tilfellum í samræmi við öryggisráðstafanir félagsins og lágmarksviðmið
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun hefur birt ákvörðun sína nr. 36/2015 vegna úttektar stofnunarinnar á mikilvægri hýsingaraðstöðu Mílu ehf.
8. janúar 2016
Póst- og fjarskiptastofnun fellst á að breytingar verði gerðar á uppbyggingarkröfum tíðniheimildar 365 miðla ehf.
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun birtir nú ákvörðun sína nr. 37/2015 þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að forsendur séu fyrir því að gerðar verði breytingar á 2. gr. tíðniheimildar A á 800 MHz tíðnisviðinu sem 365 miðlar ehf. hlutu í uppboði stofnunarinnar á tíðnisviðinu í ársbyrjun 2013.