Ákvörðun um markaðsgreiningar á heildsölumörkuðum fyrir heimtaugar og bitastraumstengingar
Ákvörðun um markaðsgreiningar á heildsölumörkuðum fyrir heimtaugar og bitastraumstengingar
Í þeirri ákvörðun sem nú er birt eru kvaðir felldar niður á Mílu á tveimur mikilvægum undirmörkuðum fjarskipta á landssvæðum þar sem yfir 80% landsmanna búa, þar með talið höfuðborgarsvæðinu, þar sem stofnunin metur að þar sé virk samkeppni.
Þann 5. apríl sl. sendi Fjarskiptastofa drög að ákvörðun er lýtur að markaðsgreiningum á heildsölumörkuðum fyrir heimtaugar (staðaraðgang með fasttengingu; markaður 3a) og bitastraumsaðgang (miðlægan aðgang með fasttengingu fyrir fjöldaframleiddar vörur; markaður 3b) til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Þann 6. maí sl. barst álit ESA sem heimilar Fjarskiptastofu að taka ákvörðun á grundvelli markaðsgreiningu stofnunarinnar. ESA gerði nokkrar athugasemdir við greininguna og eru þær að finna í viðauka með ákvörðun Fjarskiptastofu.
Í markaðsgreiningum Fjarskiptastofu eru viðkomandi markaðir skilgreindir og kemst Fjarskiptastofa að þeirri niðurstöðu að markaður 3a fyrir staðaraðgang, heimtaugaleigu, nái yfir aðgang að kopar- og ljósleiðaraheimtaugum, þar sem staðganga sé á milli slíkra heimtauga. Markaður 3b fyrir miðlægan aðgang, bitastraumsaðgang, nær einnig til sömu heimtauga.
Fjarskiptastofa varð þess áskynja snemma í greiningarferlinu, m.a. með framkvæmd markaðskannana meðal neytenda, að nokkuð væri orðið um að heimili tengdust internetinu með sérstökum farnetsbeinum. Því var ítarlegri gagna um það aflað hjá farnetsfyrirtækjunum og niðurstaða Fjarskiptastofu er að internettengingar til heimila og almennra fyrirtækja um slíka netbeina, sem eru á föstum notkunarstað, tilheyri viðkomandi smásölumarkaði og heildsölumarkaði 3b, en ekki markaði 3a.
Framkvæmd var ítarleg landfræðileg greining á umræddum heildsölumörkuðum og tengdum smásölumarkaði, þar sem hin 64 sveitarfélög landsins eru þær landfræðilegu einingar sem gengið var út frá. Sveitarfélög þar sem samkeppnislegar aðstæður eru svipaðar voru hópuð saman, en þó var töluverður fjöldi sveitarfélaga sem ekki féll að slíkri flokkun. Þegar 2 heildsölumarkaðir voru greindir í 64 sveitarfélögum landsins komu fram 81 landfræðilegir markaðir, 38 á markaði 3a og 43 á markaði 3b.
Á hverjum landfræðilega markaði er gerð greining á hvort markaðurinn sé í virkri samkeppni eða líkur á að svo verði á líftíma greiningarinnar, eða hvort einhver aðili sé með umtalsverðan markaðsstyrk þar. Niðurstaða mats á umtalsverðum markaðsstyrk er að Míla er metin í slíkri stöðu í 26 sveitarfélögum á markaði 3a og 31 sveitarfélagi á markaði 3b. Tengir er metið með umtalsverðan markaðsstyrk í 8 sveitarfélögum á 3a en engu á 3b. Ljósleiðarinn er metinn með slíkan styrk í einu sveitarfélagi á báðum mörkuðum og Austurljós í einu sveitarfélagi á markaði 3b. Eru viðeigandi kvaðir lagðar á þessi fyrirtæki á hvorum markaði, en í þeim sveitarfélögum þar sem metið er að virk samkeppni ríki eru kvaðir sem gilt hafa á Mílu til þessa felldar niður, en um 80% íbúa landsins búa í þeim sveitarfélögum. Virk samkeppni er því orðin raunin á þessum undirmörkuðum fjarskipta á svæðum þar sem mikill meirihluti landsmanna býr.
Þær kvaðir sem lagðar eru á viðkomandi aðila, þ.m.t. Mílu, eru nú mun umfangsminni en gilt hafa til þessa og víða munu engar kvaðir gilda. Þar sem kvaðir eru lagðar á munu hvorki vera lagðar á kvaðir um gagnsæi, bókhaldslegan aðskilnað eða færslu kostnaðarbókhalds. Kvöð um eftirlit með gjaldskrá er nú fyrst og fremst í formi sanngjarnrar og eðlilegrar verðlagningar, nema í tilviki aðgangs að hýsingu og rörum og lagnaleiðum hjá Mílu, og þar með almennt ekki lengur þörf á samþykki FST eða innanlandssamráðs vegna verðbreytinga á kvaðabundinni þjónustu á viðkomandi markaði.
Í áliti sínu lýsir ESA sig m.a. sammála niðurstöðu FST um staðgöngu milli fastaneta og farnetsbeina á smásölustigi og markaði 3b, en hvetur stofnunina til að fylgjast með framboði á heildsöluþjónustu á markaði 3a og hvort staðganga farneta nái mögulega til þess markaðar þegar fram líða stundir. Þá segir ESA að þær kvaðir sem FST leggur á aðila séu viðeigandi og útfærðar í samræmi við meðalhóf og þann mismun sem greina má á viðkomandi fyrirtækjum og sveitarfélögum. Einnig staðfestir ESA að enn séu til staðar einkenni lóðréttrar samþættingar milli Mílu og Símans, þrátt fyrir að Síminn hafi selt Mílu, vegna langtíma þjónustusamnings milli félaganna. ESA hvetur FST til að fylgjast með þróun á viðkomandi mörkuðum, sérstaklega hvað varðar stöðu keppinauta fyrrum einkaréttarhafa (Mílu). Fara þurfi sérstaklega varlega með að útnefna slíka keppinauta sem aðila með umtalsverðan markaðsstyrk og leggja á þá kvaðir. ESA gerði engar athugasemdir við þá niðurstöðu FST að ennþá væri staðganga milli kopar- og ljósleiðaraneta á viðkomandi mörkuðum. Þá gerði ESA fáeinar tæknilegar athugasemdir, m.a. um hópa sveitarfélaga í landfræðilegri greiningu og lengd greiningarinnar, sem Fjarskipta mun taka tillit til þegar þessi greining verður endurgerð.
FST stefnir að því að senda ESA ákvörðunina, og viðauka hennar, formlega á ensku föstudaginn 17. maí og verður þá enska útgáfa skjalanna einnig birt á heimasíðu FST.
Ákvörðunin og viðaukar hennar (pdf skjöl):
Ákvörðun 5 2024 (1).pdf
Viðauki A_Markaðsgreining M3aogb til birtingar_BGM_1.pdf
Viðauki B_Svör við athugasemdum markaðsaðila til birtingar (1).pdf
Viðauki C_Uppfærsla á tölfræði sveitarfélaganna (1).pdf
Viðauki D_Álit ESA.pdf
Ákvörðunin og viðaukar hennar í enskri þýðingu(pdf skjöl):
Decision on M3a and M3b (Public).pdf
Appendix A_Market Analysis of M3ab Formal notice to ESA (Public).pdf
Appendix B_Results of national consultation on markets M3ab (Public).pdf
Appendix C_Updated market share data (Public).pdf
Appendix D
Athugasemdir sem bárust í fyrsta samráði:
1-samráð-Ljósleiðarinn-athugasemdir-án-trúnaðaruppl.pdf
1-samráð-Míla-athugasemdir-án-trúnaðaruppl.pdf
1-samráð-Míla_samantekt_framreiknuð hlutdeild_án_trún.xlsx
1-samráð-Nova-athugasemdir-án-trúnaðaruppl.pdf
1-samráð-Samkeppniseftirlitið_umsögn.pdf
1-samráð-Síminn-Athugasemdir-til-FST.pdf
1-samráð-Tengir-Umsögn-ÁN-trúnaðarupplýsinga.pdf
Athugasemdir úr öðru samráði:
2-samráð-Ljósleiðarinn-athugasemdir-án-trúnaðaruppl.pdf
2-samráð-Ljósleiðarinn-fylgiskjal-FST-Review.pdf
2-samráð-Míla-athugasemdir-án-trúnaðaruppl.pdf
2-samráð-Nova-athugasemdir-án-trúnaðaruppl.pdf
2-samráð-Síminn-Athugsemdir-við-kvaðir.pdf
2-samráð-Tengir-Umsögn-ÁN-trúnaðar.pdf
Athugasemdir úr þriðja samráði:
3-samráð-Míla-athugasemdir-án-trúnaðaruppl.pdf
3-samráð-Tengir-án-Trúnaðar-Umsögn.pdf